Andlitsmeðferðir

Með öllum andlitsmeðferðum fylgir húðgreining og meðferðir eru sérsniðnar eftir húðgerð og þörfum hvers og eins.

Litun á augnhár og/eða augabrúnir + pl/vax samhliða húðmeðferð

Bættu við litun á hagstæðara verði, einungis hægt að bóka með annari húðmeðferð.
N.B. Hentar ekki með EYECUTICALS augnmeðferð

4.700 kr

Húðhreinsun 18.ára og yngri - 50 min

Húðhreinsun hentar húðgerðum sem vantar að auka húðflögnun og losa um stíflaðar húðholur með kreistun.

Meðferðin innifelur: Hreinsun og djúphreinsun þar sem losað er um stíflur með kreistun húðar og lokið með djúphreinsandi og bakteríudrepandi ampúlu og djúphreinsandi maska fyrir langvarandi og hreinsandi áhrif húðarinnar.

10.900 kr

EYECEUTICALS + SkinXpress - 45 min

Einstaklega orkugefandi og endurlífgandi meðferð þar sem mikil virkni næst á Xpress tíma!

Innifelur hreinsun húðarinnar, ampúlu og létt andlitsnudd ásamt EYECEUTICALS augnmeðferð með 2földum Golden Lift maska og nuddi með kældum augnpinnum, þreyta og þroti líða hjá þar sem sogæðakerfið er virkjað og augnsvæðið fær bjartara útlit og liftingu.

10.990 kr

EYECEUTICALS með annari húðmeðferð

Einungis hægt að bóka með annari húðmeðferð

3.900 kr

Janssen Cosmetics andlitsmeðferð - 60 min

Klassísk andlitsmeðferð sérsniðin eftir þinni húðgerð.

Meðferðin innifelur: Hreinsun og djúphreinsun húðarinnar, sérvalin ampúla eftir húðgerð og markmiði meðferðar, slakandi herða og andlitsnuddi. 
Meðferðinni lýkur með maska, serum og kremi sérvalið fyrir þína húðgerð.

14.300 kr

Lúxús Janssen Cosmetics andlitsmeðferð - 80 min

Lúxús andlitsmeðferð sérsniðin eftir þinni húðgerð.

Meðferðin innifelur: Hreinsun og djúphreinsun húðarinnar, sérvalin ampúla eftir húðgerð og markmiði meðferðar, slakandi herða, höfuð og andlitsnuddi.
Meðferðinni lýkur með lúxús gúmmí maska, serum og kremi sérvalið fyrir þína húðgerð.

16.900 kr

Floral energy Húðmeðferð - 60 min

Öflug andoxandi húðmeðferð sem endurlífgar þreytta húðvefi og glæðir húðina orkumiklum ljóma og frískleika.

Meðferðin innifelur yfirborðshreinsun og djúphreinsun með kröftugu enzímgeli, Stem Cell ampúlu og lúxús Floral Energy gúmmímaska. Meðferðin sameinar öfluga virkni og dásamlegt dekur þar sem húðin er nudduð uppúr virku Floral Energy þykkni sem hefur djúpnærandi og þéttandi áhrif á húðvefi með einstakri frumuvernd.

Höfuð og herðanudd er innifalið.

Fullkomin meðferð til að vekja upp þreytta húð, auka birtu og ljóma með sjáanlegum árángri eftir aðeins 1.skipti.

*Floral Energy Serum er fullkomin eftirmeðferð til að viðhalda árángri meðferðinnar og fæst með 15% afsl. með öllum Floral Energy andlitsmeðferðum og gjafabréfum.

14.500 kr

AHA & Charcoal Detox Treatment - 60 min

Janssen Cosmetics hefur sérþróað vörur fyrir þessa einstöku meðferð: AHA Detox Cleanser, Detox Enzym Peeling og Black Detox Bubble Mask sem innihalda m.a. ávaxtasýrur, activated charcoal (virk kol) og C-Vítamín sem tryggja öfluga djúphreinsun með afeitrandi Detox áhrifum fyrir húðina.

Hreinsar upp óhreinindi og örvar húðflögnun, dregur saman stórar húðholur, minnkar ójöfnur og hefur sýnilega sléttandi áhrif á yfirborð húðarinnar og eykur birtu og ljóma húðarinnar.

Sérvalin ampúla eftir þinni húðgerð og sogæðahreinsandi andlitsnudd örva blóðrás húðarinnar sem auka áhrifin og innsíun virkra efna og losa um þrota og þreytumerki, ásamt afslappandi herða-og höfuðnuddi.

Sýnilegur árángur eftir aðeins eitt skipti.

14.500 kr

Húðendurnýjandi Ávaxtasýrumeðferð - 75 min

Àvaxtasýrumeðferð örvar nýmyndun húðar minnkar og dregur saman stórar húðholur, vinnur á örum og blettamyndun, slèttir og betrumbætir húðstrúktur.
Eykur heilbrigði og jafnvægi húðarinnar með sjáanlegri virkni eftir aðeins eitt skipti.
Meðferðin er aðlöguð eftir þörfum og markmiðum hvers og eins þar sem styrkleiki ávaxtasýra er valinn eftir húðgerð og áherslu meðferðar hvort sem er að endurheimta unglegra yfirbragð, auka þéttleika og rakafyllingu, djúphreinsa stíflaðar húðholur og draga úr bólumyndun og stuðla að jafnvægi húðarinnar eða vinna á gömlum örum, ójöfnum eða litablettum.
Fagleg ráðgjöf er veitt hverju sinni um meðferðamöguleika og kúrameðferðir.
Stök meðferð er frábært orkuskot fyrir húðina þar sem allar húðgerðir njóta góðs af virkni ávaxtasýranna en fyrir dýpri virkni þar sem markmiðið er að endurnýja húðina mælum við með kúrameðferð þar sem komið er í 3 – 8 meðferðir eftir húðgerð og markmiðum. 

Meðferðin innifelur: Hreinsun húðar, djúphreinsun með Janssen Cosmetics ávaxtasýrum, styrkleiki er valinn eftir húðgerð og/eða eftir stigi í kúrameðferð.
Meðferðinni lýkur með lúxús gúmmí maska og léttu höfuðnuddi.
Sérvalin ampúla, serum og krem eftir húðgerð og markmiðum.

Stök meðferð 

16.900 kr

Xpress Ávaxtasýrumeðferð - 45 min

Express ávaxtasýrumeðferð fyrir þig sem ert á hraðferð en vilt fá öflugt orkuboozt fyrir húðina, hámarksvirkni á lágmarkstíma!
Express meðferðin er einnig hluti af ávaxtasýru kúrameðferðar þar sem tekin eru 4-8 skipti.

Meðferðin innifelur: Hreinsun húðar, djúphreinsun með Janssen Cosmetics ávaxtasýrum, styrkleiki er valinn eftir húðgerð og/eða eftir kúrameðferð.
Sérvalin ampúla, serum og krem eftir húðgerð og markmiðum.

Stök meðferð

12.900 kr

Ávaxtasýru - meðferða pakki 1

Samanstendur af 4x ávaxtasýru meðferðum 2x 75mín Ávaxtasýrumeðferð með lúxús maska í upphafi og lok kúrameðferðar og 2x Express 45min ávaxtasýrumeðferð sem eru teknar á milli, meðferðinar eru teknar með 1-3 vikna millibili eftir húðgerð og styrkleika meðferðar.  

4x skipti

48.900 kr

Caviar Luxury Treatment - 80 min

Caviar Luxury Treatment er árángursrík meðferð þar sem samspil virkra efna vinnur gegn sinduráhrifum og hægir á öldrunarferli húðarinnar. Meðferðin innifelur ríkulegt magn aminosýra, vitamína og steinefna nauðsynlega fyrir náttúrulega starfsemi húðarinnar og endurvekur þreyttar og lúnar húðfrumur til lífsins.

Húðin er hreinsuð, djúphreinsuð og síðan nudduð uppúr djúpvirkandi Caviar ampúlu og  næringarríku Caviar Massage Cream sem gefa húðinni ríkulegan skammt af nauðsynlegum steinefnum og vitamínum, endurvekja orku og frumustarfsemi húðarinnar.

Húðinni er svo lokað með frískandi og stinnandi Lúxús Caviar Maska sem innsiglar meðferðina.

Samsetning og röðun virkra efna í meðferðinni sjá til þess að öll lög húðarinnar fái ríkulegan skammt virkra efna og vítamína og gefi þannig samtundis sýnileg áhrif en hefur jafnframt áframhaldandi betrumbætta virkni frá neðstu húðlögum með djúpnærandi rakagjöf sem fyllir upp í þreytta og slappa húðvefi og eykur húðljóma með sýnilegum áhrifum.

Dásamleg dekurstund þar sem húðin er böðuð uppúr Caviar Elixir auk afslappandi herða, andlits- og höfuðnuddi.

17.900 kr

Retinol Lift Treatment - 80 min

Áhrifarík andlitsmeðferð sem byggir uppá sérvörum þar sem hið margrómaða Retinol spilar lykilhlutverk.

Janssen Cosmetics hefur þróað einstaka andlitsmeðferð þar sem húðin er meðhöndluð með hágæða vörum og byggir meðferðin uppá að veita húðinni hámarks upptöku og virkni af hinu goðsagnakennda Retinoli.

Retinol er eitt mest rannsakaða efni í heimi snyrtivara og klíniskar rannsóknir sanna það að Retinol er eitt það öflugasta efni sem hægt er að fá í húðsnyrtivörum sem hægir á öldrunarferli húðarinnar með sjánlegum árángri.

Retinol hefur margþætta eiginleika á húðina ásamt því að sporna gegn ótímabærri öldrun húðarinna stuðlar það einnig að jafnvægi fituframleiðslu húðarinnar dregur þannig úr fílapensla myndun og dregur saman stórar húðholur.
Yfirborð húðarinnar verður sléttara þar sem náttúruleg húðflögnun eykst ásamt því að vinna á gömlum örum, misfellum eða ójöfnu litarhafti.
Birtan í húðinni eykst til muna og grá eða líflaus húð endurheimtir líflegan ljóma með unglegra yfirbragði.

Janssen Cosmetics hefur sérþróað einstaka virkni með hjúpuðu Retinoli og nær þess vegna að flytja Retinólið dýpra niður í húðina og tryggir þannig hámarksupptöku og virkni í neðstu húðlögum.
Samhliða Retinolinu er annað lykilefni sem heitir Niacinamide sem er eitt form af B Vítamini og hefur retinól-lík áhrif á húðina ásamt því að styrkja varnahjúp húðarinnar, minnka bólgu, roða og ertingu og tryggir þannig þolanleika blöndunnar fyrir hámarksárángur og geislandi húð.

Meðferðin innifelur: Hreinsun húðar og djúphreinsun, ríkulegt magn af Retinol Lift Serum er síðan borið á húðina og Retinol Lift Maski með Bio-Cellulose tækni sem hámarkar innsíun og upptöku húðarinnar á virkum efnum meðferðarinnar.
Slakandi herða og höfuð nudd sem fær þig í djúpa slökun á meðan maskinn virkar. Meðferðinni lýkur svo með andlitsnuddi þar sem meðferðin er innsigluð með Retinol Lift Massage Cream, sérvalinni ampúlu, augnkremi og Marine Collagen andlitskremi.

Ath. Retinol Lift er afar virk húðmeðferð og hentar ekki mjög viðkvæmum húðgerðum, hafa ber í huga að húðin verður ljósnæmari beint eftir meðferðina og mælum við alltaf með að nota sólarvörn til að verja húðina.

18.500 kr

Scroll to Top

Vörulínur