Andlitsmeðferðir

Við notum Janssen Cosmetics, hágæða virkar cosmeceutical húðvörur í öllum andlitsmeðferðum á Kosmetik Snyrtistofu.
Vörunar eru þróaðar og framleiddar í Þýskalandi eftir hæstu gæðastöðlum með framúrskarandi virkni bæði í fagmeðferðum á stofu og virkum húðvörum fyrir heimanotkun, fáanlegar í yfir 80 löndum á heimsvísu.
Með öllum andlitsmeðferðum fylgir húðgreining og meðferðir eru sérsniðnar eftir húðgerð og þörfum hvers og eins.

Litun á augnhár og/eða augabrúnir + pl/vax samhliða húðmeðferð

Bættu við litun á hagstæðara verði, einungis hægt að bóka með annari húðmeðferð.

6.300 kr.

Húðhreinsun 18.ára og yngri - 50 min

Húðhreinsun hentar húðgerðum sem vantar að auka húðflögnun og losa um stíflaðar húðholur með kreistun.

Meðferðin innifelur: Hreinsun og djúphreinsun þar sem losað er um stíflur með kreistun húðar og lokið með djúphreinsandi og bakteríudrepandi ampúlu og djúphreinsandi maska fyrir langvarandi og hreinsandi áhrif húðarinnar.

14.900 kr.

Janssen Cosmetics andlitsmeðferð - 60 min

Klassísk andlitsmeðferð sérsniðin eftir þinni húðgerð.

Meðferðin innifelur: Hreinsun og djúphreinsun húðarinnar, sérvalin ampúla eftir húðgerð og markmiði meðferðar, slakandi herða og andlitsnuddi með virkum efnum samhliða markmiði meðferðar.
Meðferðinni lýkur með maska, serum og kremi sérvalið fyrir þína húðgerð.
Róleg og endurnærandi stund í afslöppuðu umhverfi.

16.900 kr.

Lúxús Janssen Cosmetics andlitsmeðferð - 80 min

Lúxús andlitsmeðferð sérsniðin eftir þinni húðgerð.

Meðferðin innifelur: Hreinsun og djúphreinsun húðarinnar, sérvalin ampúla eftir húðgerð og markmiði meðferðar, slakandi herða, höfuð og andlitsnuddi með virkum efnum samhliða markmiði meðferðar.
Meðferðinni lýkur með lúxús gúmmí maska, léttu handa nuddi og serum og kremi sérvalið fyrir þína húðgerð.

19.900 kr.

Ceramide Re-Barrier andlitsmeðferð - 60 min

Öflug uppbyggjandi húðmeðferð frá Janssen Cosmetics sem er sérstaklega þróuð til að styrkja, vernda og endurbyggja náttúrulegan varnarhjúp húðarinnar með virkum seramíðum.

Meðferðin hentar einstaklega vel fyrir húð sem upplifir ójafnvægi, viðkvæmni, roða þurrk og eða skortir mýkt og rakafyllingu.

Samspil lykilinnihaldsefna á borð við seramíða, niacinamide, Vitamin F og hýalúrónsýru hafa einstaka eiginleika við að samstilla og stuðla að heilbrigðu jafnvægi húðarinnar með áhrifaríkum en öruggum hætti. Meðferðin hefur mjög græðandi eiginleika og vinnur markvisst á roða, ertingu eða hrjúfri áferð húðar vegna þurrks með sýnilegum árangri eftir aðeins eitt skipti.

Fullkomin meðferð fyrir sérstök tilefni eða viðburði!

Fullkomin leið til að endurstilla húðina og koma aftur á jafnvægi.

Meðferðin innifelur slakandi andlits- og herðanudd.

17.900 kr.

Húðendurnýjandi Ávaxtasýrumeðferð - 60 min

Àvaxtasýrumeðferð örvar nýmyndun húðar minnkar og dregur saman stórar húðholur, vinnur á örum og blettamyndun, slèttir og betrumbætir húðstrúktur.
Eykur heilbrigði og jafnvægi húðarinnar með sjáanlegri virkni eftir aðeins eitt skipti.
Meðferðin er aðlöguð eftir þörfum og markmiðum hvers og eins þar sem styrkleiki ávaxtasýra er valinn eftir húðgerð og áherslu meðferðar hvort sem er að endurheimta unglegra yfirbragð, auka þéttleika og rakafyllingu, djúphreinsa stíflaðar húðholur og draga úr bólumyndun og stuðla að jafnvægi húðarinnar eða vinna á gömlum örum, ójöfnum eða litablettum.
*Fagleg ráðgjöf er veitt hverju sinni um meðferðamöguleika og kúrameðferðir.*
Stök meðferð er frábært orkuskot fyrir húðina þar sem allar húðgerðir njóta góðs af virkni ávaxtasýranna en fyrir dýpri virkni þar sem markmiðið er að endurnýja húðina mælum við með kúrameðferð þar sem komið er í 3 – 8 meðferðir eftir húðgerð og markmiðum. 

*15% afsl. af meðferðum ef tekinn er kúr*

Meðferðin innifelur: Hreinsun húðar, djúphreinsun með Janssen Cosmetics ávaxtasýrum, styrkleiki er valinn eftir húðgerð og/eða eftir stigi í kúrameðferð, andlit og háls.
Meðferðinni lýkur með lúxús gúmmí maska og léttu andlits og höfuðnuddi.
Sérvalin ampúla, serum og krem eftir húðgerð og markmiðum hverju sinni.

*Stök meðferð 

19.900 kr.

Xpress Ávaxtasýrumeðferð - 45 min

Express ávaxtasýrumeðferð fyrir þig sem ert á hraðferð en vilt fá öflugt orkuboozt fyrir húðina, hámarksvirkni á lágmarkstíma!
Express meðferðin er einnig hluti af ávaxtasýru kúrameðferðar þar sem tekin eru 4-8 skipti.

*15% afsl. af meðferðum ef tekinn er kúr*

Meðferðin innifelur: Hreinsun húðar, djúphreinsun með Janssen Cosmetics ávaxtasýrum, styrkleiki er valinn eftir húðgerð og/eða eftir kúrameðferð, andlit og háls.
Sérvalin ampúla, serum og krem eftir húðgerð og markmiðum.

*Stök meðferð

16.500 kr.

Ávaxtasýru - meðferða pakki 1

Samanstendur af 4x ávaxtasýru meðferðum 2x 60mín Ávaxtasýrumeðferð með lúxús maska í upphafi og lok kúrameðferðar og 2x Express 30min ávaxtasýrumeðferð.
Meðferðinar eru teknar með 1-3 vikna millibili eftir húðgerð og styrkleika meðferðar.  

Innifelur 4x skipti en einungis borgað fyrir 3.skipti

58.200 kr.

Scroll to Top