Skilmálar
Eingöngu fagfólk við snyrtingu getur verslað við Kosmetik Heildsölu með innskráningu inná vef Kosmetik Heildsölu.
Með því að leggja inn pöntun hjá Kosmetik Heildsölu samþykir kaupandi eftirfarandi skilmála.
Kosmetik Heildsala er rekin af Beautify ehf. Kt.4403161150
Greiðsla
Greiðslur fara eingöngu fram í gegnum reikningsviðskipti eða með millifærslu, ekki er hægt að greiða fyrir vörur af heildsölu með kredit- eða debetkorti.
Viðskiptavinur fær afhentan reikning með 10 daga greiðslufrest.
Ógreiddar kröfur fara sjálfkrafa í innheimtuferli hjá Motus 10 dögum eftir fallinn gjalddaga.
Afhending vöru
Pantanir eru afgreiddar á 1 – 3 virkum dögum.
Hægt er að fá vörur sendar í útkeyrslu innan höfuðborgarsvæðisins eða fá sent með Íslandspósti
Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.
Skilmálar Póstsins eru aðgengilegir inná vefsíðu fyrirtækisins.
Kosmetik Heildsala tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir gefi upp rétt póstfang eða séu með rétt merkta póstkassa.
Allar póstsendingar Kosmetik Heildsölu eru skráðar hjá Íslandspósti.
Útkeyrsla á vörum fer alla jafna fram þriðjudaga og fimmtudaga.
Kosmetik Heildsala ber ekki ábyrgð á opnunartíma afhendingarstaða og þær pantanir sem ekki er hægt að afhenda verða sendar aftur á Kosmetik þar sem viðtakandi getur nálgast vörunar.
Einnig er hægt að sækja tilbúnar pantanir á Kosmetik Snyrtistofu á opnunartíma eða eftir samkomulagi.
Sendingarkostnaður
Enginn sendingarkostnaður er á pöntunum yfir 20.000kr/án vsk
Sendingarkostnaður á pöntunum undir 20.000kr er 1.790kr
Vöruverð
Öll vöruverð eru án virðisauka.
Öll vöruverð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilur Kosmetik Heildsala sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.
Vinsamlega athugið að vöruverð getur breyst án fyrirvara.
Allar upplýsingar á síðunni eru birtar með fyrirvara um mögulegar prentvillur og myndbrengl.
Kosmetik Heildsala hvetur viðskiptavini til að kynna sér og lesa um innihaldsefni á umbúðum áður en þær eru notaðar.
Vöruskil
Kaupandi hefur 7 daga frá móttöku til að hætta við kaupin að því tilskyldu að hann hafi ekki notað vörunna og að henni sé skilað í óuppteknum og upprunalegum umbúðum. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd
Sé vara gölluð er vöru skilað og viðskiptavini boðin ný vara í staðin og greiðir Kosmetik Heildsala fyrir allan kostnað sem kann að koma við sendingu.
Trúnaður
Kosmetik Heildsala heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.
Varnarþing
Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.
Kosmetik Heildsala
Beautify ehf.
Borgartún 29, bakatil
kosmetik@kosmetik.is
VSK nr. 123393
Kt. 440316-1150
Meðferð persónuupplýsinga
Notendur Kosmetik Heildsölu þurfa að gefa persónuupplýsingar, nafn, heimilisfang, símanúmer og netfang þegar keyptar eru vörur á vefnum.
Ef notandi vill síðar að þessum upplýsingum sé eytt, munum við verða við þeirri ósk, nema því aðeins að það sé ekki hægt af bókhaldslegum eða lagalegum ástæðum. Þessar upplýsingar eru eingöngu aðgengilegar starfsmönnum Kosmetik Heildsölu og upplýsingarnar notum við einungis til að geta afgreitt pöntun þína og sinnt þeim málum sem upp kunna að koma varðandi hana.
Öll samskipti milli Kosmetik Heildsölu og kaupanda er varða viðskipti, persónulegar upplýsingar, einstaka atvik eða hvað annað tengt viðskiptasambandi milli Kosmetik Heildsölu og kaupanda eru bundin trúnaði og þagnarskyldu á báða boga og heita því að persónulegar upplýsingar fari undir engum kringumstæðum til þriðja aðila.
Þegar greiðsla fer fram er það ávallt gert í gegnum heimabanka sem tryggir að greiðsluupplýsingar þínar verða óaðgengilegar fyrir óviðkomandi.