Azelaic Acid Serum 30ml
LEAVE-ON DJÚPHREINSANDI SERUM FYRIR JAFNARI ÁFERÐ HÚÐARINNAR
Ójöfnur, fílapenslamyndun og uppsöfnuð óhreinindi geta komið fram í húðinni hjá ólíkum húðgerðum jafnvel hjá fólki sem er ekki með olíukennda eða blandaða húð þar sem húðinni vantar aukna endurnýjun og hreinsun.
Stíflaðar húðholur, bólur og fílapenslar eru eitthvað sem flestir væru til í að losna sem fyrst við með einföldum hætti og er Azelaic sýran frábær valkostur þar sem húðin fær örugga djúphreinsun og endurnýjun án þess að hafa of ertandi áhrif. Azelaic Acid Serum inniheldur aselsýru (azelaic acid) og aselsýruafleiðu (azelaic acid derivative) sem auka birtu húðarinnar og stuðla að jafnari húðlit með djúphreinsandi eiginleikum sem sléttir og gefur jafnari yfirborðsáferð.
Aselsýra er þekkt í lyfjaiðnaðinum fyrir sýkladrepandi áhrif og fyrir að vinna gegn og fyrirbyggja stíflaðar húðholur með öruggum hætti. Með reglulegri notkun má draga verulega úr fílapenslamyndun, stíflum í húðholum og bólumyndun. Mild en áhrifarík djúphreinsandi áhrif aselsýru stuðla að heilbrigðu keratínmyndunarferli húðarinnar sem og náttúrulegri húðendurnýjun þar sem sýran fjarlægir dauðar húðfrumur af yfirborði húðarinnar á varfærinn og öruggan hátt án þess að valda ertingu.
Áferð húðarinnar verður jafnari, bjartari og laus við óhreinindi. Enn fremur tryggir sýran minni styrkleika litabletta og uppsöfnun litarefna í húðinni, eykur birtu og jafnar húðlitinn. Aselsýran hefur að auki sefandi áhrif dregur úr roða með bólguhamlandi eiginleikum á meðan Aselsýruafleiðan (azelaic acid derivative) eflir varnir húðarinnar með andoxandi og sýkladrepandi eiginleikum sem jafna olíuframleiðslu húðarinnar með verndandi áhrifum gegn sindurefnum.
Létt formúlan smýgur hratt niður húðina og er vel þolanleg fyrir allar húðgerðir og má einnig nota á meðgöngu.
-Í byrjun skal bera Azelaic Acid Serum á hreina húð þrisvar í viku kvölds og morgna á meðan húðin er að venjast og ljúka með þínu daglega kremi yfir.
-Auka má daglega notkun kvölds og morgna eftir þörfum og þolanleika húðarinnar. Hafa ber í huga að með reglulegri notkun eykst ljósnæmni húðarinnar og er mikilvægt að bæta við vörn gegn UV geislum eins og Face Guard Advanced.
-Aselsýru og afleiður hennar má nota í stað salisýlsýru (salicylic acid) á meðgöngu.
9.330 kr.