Ceramide RE-BARRIER Beauty Duo

Trend Edition í takmörkuðu upplagi!

Fullkomin kúr til að styrkja og endurstilla varnarhjúp húðarinnar, frábær tvenna til að viðhalda árángri eftir andlitsmeðferðir eða sem öflug viðgerð heima fyrir viðkvæmar, þurrar húðgerðir eða húð sem vantar aukið jafnvægi.

Styrkir. Endurbyggir. Verndar.

Ceramide Beauty Duo frá Janssen Cosmetics er öflug húðumhirðutvenna með serum og kremi sem vinnur markvisst að því að styrkja og endurbyggja náttúrulegan varnarhjúp húðarinnar. Heilbrigð húð byggir á réttu jafnvægi raka og fitusýra í yfirborði húðarinnar, en þegar það jafnvægi raskast verður húðin viðkvæmari, tapar raka hraðar og bregst auðveldlega við með þurrki, roða, kláða og herpingstilfinningu sem getur valdið óþægindum. Ceramide Beauty Duo er sérstaklega þróað til að styðja húðina einmitt við þessar aðstæður og hjálpa henni að endurheimta jafnvægi, aukna mýkt og heilbrigðara yfirbragð.

Seramíðar gegna þar lykilhlutverki, enda eru þeir náttúrulegur hluti af varnarhjúp húðarinnar. Þeir hjálpa til við að styrkja samheldni húðarinnar, draga úr rakatapi og styðja við getu hennar til að verja sig gegn ytri ertingu og umhverfisáhrifum. Með markvissri blöndu seramíða hjálpar Ceramide Beauty Duo til við að auka jafnvægi og efla náttúrulegar varnir húðarinnar, fyllir á rakabirgðir, sefar roða og ertingu og gefur húðinni aukna léttleikatilfinningu.

Lykilvirkni:

  • Styrkir náttúrulegan varnarhjúp húðarinnar – Öflug seramíðblanda með Ceramide 1 (EOS), 2 (NS), 3 (NP), 5 (AS) og 6 (AP) styrkja frumuhimnur og eru mikilvæg byggingarefni í náttúrulegum varnarhjúp húðarinnar. Viðhalda rakajafnvægi og hindra rakatap (TEWL) sem styður við heilbrigðari og sterkari húð.
    Djúpur og langvarandi raki – Hýalúrónsýra í mismunandi sameindastærðum hjálpar til við að binda raka bæði á yfirborði húðarinnar og í efri lögum hennar.
    Róar og mýkir – Lakkrísrótarkjarni dregur úr ertingu og sefar viðkvæma húð.
    Styður við jafnvægi húðarinnar – Saccharide Isomerate rakagefandi kolvetnasamsetning (líkist náttúrulegum rakabindandi efnum húðarinnar veitir langvarandi raka með virkni í allt að 72klst. eftir ásetningu) og Vitamin F Forte hjálpa til við að viðhalda réttu jafnvægi milli raka og fitusýra sem stuðlar að heilbrigðu jafnvægi sýruhjúps húðarinnar og eflir þannig náttúrulegt varnarlag.

Notkun

  1. Berðu serumið á – Nuddið varlega inn í hreina og þurra húð á andliti, hálsi og bringusvæði kvölds og morgna. Serumið veitir húðinni djúpvirkandi rakafyllingu með langvarandi eiginleikum með innihaldsefnum á borð við Saccharide Isomerate og hýalúrónsýru. Lakkrísrótarkjarni styður jafnframt við róandi áhrif og hjálpar húð sem er viðkvæm eða ert.
  1. Fylgdu á eftir með kreminu – Berðu kremið yfir serumið til að innsigla virkni og veita húðinni aukið varnarlag og mýkt með nærandi innihaldsefnum á borð við squalane og Vitamin F Forte, sem hjálpa húðinni að halda betur í raka og styðja við heilbrigðara jafnvægi í varnarhjúp hennar.

Ceramide Beauty Duo er frábær kúr fyrir allar húðgerðir til að efla og styrkja varnarlag húðarinnar.

Áhrifarík endurbyggjandi meðferð fyrir viðkvæmar húðgerðir, gegn roða, ertingu eða öðrum óþægindum, mýkir upp þurra og hrjúfa húð og frábær meðferð gegn þrálátum þurrkublettum, sáramyndun eða flagnandi húð.

Bæði serumið og kremið eru með létta áferð og þrátt fyrir djúpnærandi eiginleika þá verður yfirborð húðarinnar ekki olíukennt þar sem seramíð sjá um að endurbyggja varnarlag húðarinnar og koma jafnvægi á millli raka og fitu.

 

8.990 kr.

Scroll to Top