Deep Xpress Hydro Mask 75ml

Kröftug rakagjöf með langvarandi áhrifum

Frískandi gelmaski sem veitir rakaþurri húð ríkulegan raka, mýkt og sýnilega fyllingu. Létt, kælandi gelformúlan veitir samstundis þægindi og dregur úr herpingstilfinningu vegna þurrks. Húðin verður ferskari og sléttari og fínar þurrklínur minna áberandi.

Sérstaða Deep Xpress Hydro Mask liggur í Hydro Express Complex, háþróaðri samsetningu sem bindur raka og miðlar rakagefandi efnum smám saman til húðarinnar. Þannig heldur rakagjöfin áfram eftir notkun og hjálpar húðinni að viðhalda mýkt og góðu rakajafnvægi.

Rannsóknir á Hydro Express Complex sýna 25% aukningu á rakamagni húðarinnar eftir aðeins 30 mínútur, með rakagefandi áhrifum í allt að 48 klukkustundir eftir eina notkun. Við reglulega notkun getur aukið rakastig haldist í allt að fimm daga eftir síðustu ásetningu.

Tilvalin rakameðferð 1x til 2x í viku eftir húðgerð og þörfum húðarinnar hverju sinni.
Fullkominn léttir þegar húðin er þurr og algör s.o.s. maski t.d. eftir ferðalög eða þegar kuldi og þurrt inniloft kalla á aukna rakagjöf. Kælandi áferðin gerir maskann einnig sérstaklega þægilegan eftir líkamsrækt eða sólríka daga.

Helstu eiginleikar

  • Veitir bæði samstundis og langvarandi rakagjöf.
  • Frískar og kælir húðina.
  • Dregur úr herpingstilfinningu vegna rakaþurrks.
  • Mýkir húðina og dregur úr ásýnd fínna þurrklína.
  • Gefur húðinni sléttari áferð og ferskara yfirbragð.

Fyrir hvaða húð?

Fyrir þurra og rakaþurra húð, en hentar öllum húðgerðum sem vilja auka rakamagn húðar og fá öfluga rakameðferð með fljótvirkum árángri.
TIP. Frábær maski til að fylla á rakabirgðir og slétta áferð húðarinnar t.d. fyrir brúðkaup, farðanir eða aðra viðburði.

Notkun

Berið meðalþunnt lag á hreina húð á andliti, hálsi og bringu. Maskann má einnig bera undir augun; forðist að hann berist í augun. Látið virka í 5–20 mínútur, fjarlægið umfram maska með volgu þvottastykki og berið síðan á ykkar vanalega JANSSEN COSMETICS krem. Fyrir enn ákafari rakameðferð má láta maskann liggja á yfir nótt.

Helstu innihaldsefni

Hydro Express Complex: Samsetning hyaluronsýru, algínats og pullulans myndar ósýnilegt rakabindandi net á yfirborði húðarinnar. Það heldur utan um rakagefandi efni, meðal annars glýserín, serín, trehalósa og urea, sem losna smám saman og hjálpa húðinni að viðhalda raka til lengri tíma.

7.120 kr.

Vörunúmer: JS0023 Vöruflokkar: , Tags , , ,
Scroll to Top