PRO YOUTH ampúlukúr 7x2ml
Pro-Youth 7 daga ampúlukúr frá Janssen Cosmetics er háþróaður 7 daga meðferðarpakki með sérvöldum ampúlum sem auka endurnýjun húðar, styrkja húðvefi og gefa húðinni frísklegan ljóma allt frá fyrsta degi. Hver dagur meðferðarinnar inniheldur sértæka ampúlu með virkum innihaldsefnum sem vinna frá neðstu húðlögum að því að bæta áferð húðarinnar, auka rakafyllingu og draga úr þreytu og öldrunarmerkjum.
Innihald og virkni
Pro-Youth pakkinn samanstendur af 7 ampúlum, hver ampúla inniheldur 2 ml af virkri lausn til notkunar fyrir eitt skipti.
- 2 x ACTIVATE – Marine Collagen Fluid: Innihalda hreint sjávarkollagen sem myndar rakagefandi og styrkjandi varnarlag í húðinni, ásamt löngum keðjum af hýalúrónsýru sem bindur raka og fyllir uppí fínar línur á yfirborði húðarinnar að auki innihalda þær andoxandi granateplablómaþykkni og C-vítamín sem örvar enn frekar kollagenframleiðslu og verndar húðina gegn umhverfisáhrifum.
Húðin fær samstundis orku og virkjast með sýnilega frískandi áhrifum.
- 2 x ENERGY – Caviar Extract: Innihalda kavíarþykkni sem er ríkt af amínósýrum og steinefnum sem styðja við endurnýjun húðarinnar og bæta áferð hennar. Að auki innihalda ampúlurnar Artemia þykkni sem eykur orkumyndun húðfrumna og styður við efnaskipti húðarinnar. Húðin öðlast aukinn styrk, frískleika og geislandi útlit.
- 3 x FLAWLESS – Skin Contour Fluid: Þessar ampúlur innihalda elastínörvandi peptíð sem styrkja bandvefinn með lyftandi áhrifum á slaka húðvefi. SORR plöntuþykkni, unnið úr Siegesbeckia orientalis og Rabdosia rubescens, veita djúpvirkandi næringu, sefa roða og ertingu og stuðla að jafnari húðlit. Auk þess innihalda þær saccharide isomerate fjölsykrur sem veita djúpvirkandi rakagjöf. Húðin fær aukinn stinnleika og fyllingu með sléttara yfirbragði.
Notkunarleiðbeiningar
Til að hámarka árangur er mælt með að nota eina ampúlu á dag í 7 daga. Hreinsið húðina vandlega áður en ampúlan er borin á, og nuddið innihaldinu varlega inn í húðina með fingurgómum. Til að viðhalda áhrifunum er hægt að endurtaka meðferðina reglulega.
Pro-Youth ampúlukúrinn hentar öllum húðgerðum, þar á meðal viðkvæmri, þurri og þroskaðri húð. Hann er sérstaklega gagnlegur fyrir þá sem vilja:
- Draga úr fínum línum og hrukkum
- Auka stinnleika og teygjanleika húðar
- Endurnýja og gefa húðinni aukinn ljóma
- Vernda húðina gegn umhverfisáhrifum
Tilvalin kúr sem orkugefandi og frískandi meðferð fyrir sérstök tilefni eða sem hluti af reglulegri húðumhirðu til að viðhalda unglegri og heilbrigðri húð.
6.580 kr.
