Tinted Balancing Cream 50ml
Flauelsmjúkt og létt litað dagkrem, kemur í einum lit með litapigmentum sem aðlagast mismunandi húðtón hjá hverjum og einum með mildum bronze áhrifum sem gera húðina enn frísklegri.
Tinted Balancing Cream er sérstaklega þróað til að mæta þörfum blandaðrar húðgerðar með tvöfaldri virkni þar sem kremið veitir bæði góða rakagjöf auk þess að stuðla að auknu jafnvægi á olíuframleiðslu húðarinnar, staðbundið allt eftir þörfum húðarinnar.
Létt og loftkennd áferð á kreminu inniheldur virkt sykru-líkt efni unnið úr Rice bran sem hefur þann einstaka eiginleika að stuðla að jafnvægi fitukirtla hvort sem er á olíukenndum svæðum eða þurrari svæðum húðarinnar ásamt þykkni úr Rauðum Þara og Aloe Vera sem gefa húðinni djúpvirkandi rakagjöf ásamt því að sefa roða og ertingu.
Kremið gefur húðinni einstaklega fallega og jafna áferð með möttu yfirbragði, með reglulegri notkun minnka stórar/opnar húðholur og húðin öðlast betra jafnvægi.
Helstu eiginleikar:
- Jafnar húðlit og gefur húðinni fallegri áferð með sefandi eiginleikum á roða og ertingu
- Stuðlar að bættu jafnvægi á fituframleiðslu húðarinnar með tviþættri virkni fyrir blandaða húð
- Með reglulegri notkun minnka stórar/ opnar húðholur og dragast saman með sýnilegum árángri
- Inniheldur örfínar púðuragnir sem draga í sig umfram olíur á yfirborði húðarinnar þannig hún helst mött og silkimjúk
6.480 kr.