PRO-GLOW Ampúlukúr 7x2ml
Pro Glow Selection – 7 daga ampúlukúr
Ljómagefandi ampúlukúr sem veitir húðinni samstundis ferskara, jafnara og geislandi yfirbragð.
Pro Glow Selection er sérvalin ampúlupakki sem sameinar þrjár öflugar ampúlur í 7 daga kúr fyrir húð sem vantar aukinn ljóma, rakafyllingu og frísklegra yfirbragð.
Kúrinn er hannaður til að auka ljóma og útgeislun húðarinnar með sýnilegum árangri, draga úr þreytumerkjum og gefa húðinni sléttara, stinnara og unglegra útlit.
Í pakkanum eru 2 x Brilliance Shine Elixir, 2 x Marine Collagen Fluid og 3 x Radiant Skin Fluid.
Samsetning kúrsins vinnur markvisst gegn þreyttri og líflausri húð og gefur henni fallegan, heilbrigðan ljóma. Brilliance Shine Elixir vinnur strax á sýnilegum þreytumerkjum, Marine Collagen Fluid veitir sjáanlega stinnandi áhrif og Radiant Skin Fluid gefur húðinni náttúrulega ferskan ljóma.
Pro Glow Selection er því fullkominn kúr fyrir húð sem þarf skjóta upplyftingu t.d. fyrir viðburði, eða þegar húðin virkar þreytt og orkulaus.
Innihald og virkni
Pro-Glow pakkinn samanstendur af 7 ampúlum, hver ampúla inniheldur 2 ml af virkri lausn til notkunar fyrir eitt skipti.
Dagur 1 & 2 ACTIVATE – Marine Collagen Fluid: Innihalda hreint sjávarkollagen sem myndar rakagefandi og styrkjandi varnarlag í húðinni, ásamt löngum keðjum af hýalúrónsýru sem bindur raka og fyllir uppí fínar línur á yfirborði húðarinnar að auki innihalda þær andoxandi granateplablómaþykkni og C-vítamín sem örvar enn frekar kollagenframleiðslu og verndar húðina gegn umhverfisáhrifum.
Húðin fær samstundis orku og virkjast með sýnilega frískandi áhrifum.
Dagur 3 & 4 Brilliance Shine Elixir: Brilliance Shine Elixir ampúlan er byggð á einstakri virkni með MatrixylTM Synthe‘6 TM petíð formúlu ásamt Persian Silk Tree exteact plöntuþykkni unnið úr persnesku silkitré.
Peptíð formúlan virkar eins og viðgerðarþræðir sem tengja sig við og fylla uppí skemmda/brotna kollegenþræði húðarinnar sem eykur þrótt og þèttleika húðarinnar með langvarandi eiginleikum.
Saman með hreinu plöntuþykkni Persneska trèsins sem hefur einstök áhrif gegn þreytumerkjum húðarinnar og öldrunareinkennum fyllist húðin nýrri orku og fínar línur, hrukkur og svipbrigðalínur grynnka með sýnilegum árángri.
Dagur 5, 6 & 7 Radiant Skin Fluid: Ampúlan inniheldur þörunga extract úr Indlandshafi sem gefur húðinni aukinn húðljóma á sjálfbæran hátt þ.e.a.s þörunganir láta húðina sjálfa framkalla aukinn húðljóma með því að hámarka frumuskiptingu í yfirborðslögum húðarinnar og stuðla þannig að jafnari uppbyggingu hennar sem eru fullkomin skilyrði fyrir geislandi og frísklegan húðljóma.
Radiant Skin Fluid inniheldur að auki kjarna úr bóndarós sem tryggir að yfirbragð húðarinnar fær aukna birtu og jafnara litarhaft með hverjum deginum sem líður ásamt tvíþættri hýalúrónsýru sem gefur húðinni djúpnærandi raka frá neðstu húðlögum sem fyllir uppí fínar línur/ójöfnur með sléttandi áhrifum á yfirborði húðarinnar.
6.850 kr.



