Vita X Power Fluid 7 x 2ml

Vita X Power Fluid er ný ampúla úr smiðju Janssen Cosmetics og hefur öflugustu andoxunar eiginleika í ampúluformi frá JANSSEN COSMETICS hingað til.
Formúlan sameinar vísindalega nákvæmni, öflug virk innihaldsefni og sýnilegan árangur fyrir húð sem þarfnast aukinnar orku, öfluga vörn gegn sinduráhrifum, jafnari húðlit og einstakann húðljóma.

Vita X Power Fluid  veitir húðinni öfluga virkni og háþróaða andoxunarvörn gegn ótímabærri öldrun. Formúlan sameinar astaxanthin og vitamín C phosphate, tvö öflug andoxunarefni sem vinna saman að því að vernda húðina gegn sindurefnum og styðja við jafnari, bjartari og líflegri ásýnd. Astaxanthin er þekkt sem eitt öflugasta andoxunarefni sem notað er í húðumhirðu og vinnur markvisst að því að draga úr sýnileika fíngerðra lína og hrukka, á meðan vitamin C phosphate styður við jafnari húðlit og aukinn ljóma.

Helstu eiginleikar:
• vernda húðina gegn sindurefnum og umhverfisáreiti
• sporna gegn ótímabærri öldrun húðarinnar
• draga sýnilega úr fínum línum og hrukkum
• stuðla að jafnari og bjartari húðlit
• gefa húðinni raka, fyllingu og ferskari ljóma

Formúlan inniheldur einnig hýalúrónsýru í löngum og stuttum keðjum sem veita húðinni bæði samstundis raka og vernd ásamt dýpri rakafyllingu, ásamt bisabolol sem hefur róandi áhrif og styður við vellíðan húðarinnar.

Vita X Power Fluid kemur í ljósvarinni brúnni glerampúlu sem verndar innihald ampúlunnar gegn ljósi eða oxunaráhrifum.

6.580 kr.

Vörunúmer: 1957 Vöruflokkar: ,
Scroll to Top